Auðgandi Landbúnaður

Auðgandi landbúnaður lýsir heildrænum landbúnaðarkerfum sem, meðal annars, bæta vatns- og loftgæði, auka líffræðilegan fjölbreytileika vistkerfa, framleiða næringarríkan mat og geyma kolefni til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
Þessi búskaparkerfi eru hönnuð til að vinna í sátt við náttúruna, en jafnframt viðhalda og bæta efnahagslega hagkvæmni.

FAO. Food and Agricultural Organizations of the United Nations. www.fao.org

Vivamus sit amet libero

Auðgandi landbúnaður er leið til að byggja upp heilbrigði jarðvegsins – með því að nýta náttúrulega ferla náttúrunnar.

Að læra að vinna með náttúrunni, frekar en á móti henni, mun gagnast okkur öllum á endanum: jarðveginum, vatninu, loftinu, plöntunum, dýrunum og fólkinu.

Hægt er að endurnýja heilbrigði jarðvegs okkar með skilningi á því hvernig landið virkar í gegnum vistkerfisferlana fjóra (orkuflæði, hringrás vatns, hringrás næringarefna og samfélagsvirkni).

Noble Research Institute www.noble.org

Etiam lacinia sit amet

Auðgandi landbúnaður er leiðin fram á við til að kolefnisjafna matvælakerfið og gera landbúnaðinn þolinn fyrir loftslagsáföllum.

Það mun ekki gerast nema okkur takist að gera það viðskiptalega aðlaðandi fyrir bændur.

Bændur verða að vera í forgangi sem lykilaðilar í baráttu okkar gegn loftslagsbreytingum.

World Economic Forum www.weforum.org

Hvers vegna

Tap á frjósömum jarðvegi heimsins og líffræðilegum fjölbreytileika er banvæn ógn við framtíðarafkomu okkar. Samkvæmt jarðvegsfræðingum, við núverandi hraða eyðingar jarðvegs (þ.e. kolefni tapast út í andrúmsloftið, veðrun, eyðimerkurmyndun, efnamengun) er talið að við höfum jarðvegsgróðurmold (topsoil) 60 ár til ræktunar. Það þýðir rýrnun á matvælaframboði sem einkennist á minni næringu og tapi á mikilvægum snefilefnum, sem og tjóni á lýðheilsu. Ekki verður lengur nægileg ræktanleg gróðurmold til að fæða mannkynið.

Hvernig

Auðgandi landbúnaður leiðir til heilbrigðs jarðvegs, sem getur framleitt hágæða, næringarrík matvæli á sama tíma og hann bætir land og leiðir að lokum til frjósamra býla og heilbrigðra samfélaga og hagkerfa. Horfa þarf til búskapar með heildrænum hætti, sem felur í sér vistræna og lífræna búskaparhætti. Með því t.d. að draga úr jarðvegsraski, nota þekjugróður, skiptiræktun, moltugerð, beitarstjórnun og gerð beitilands, til að auka matvælaframleiðslu, auka tekjur til bænda og sérstaklega að bæta efsta hluta jarðvegsins.

  • No-Till – Draga verulega úr plægingu, jafnvel alveg

  • Cover Crops – Þekjugróður.

  • Draga verulega eða hætta alveg notkun tilbúins áburðar, skordýraeiturs, arfaeiturs, sveppaeiturs og annarra kemískra efna.

  • Nota moltu, moltute, húsdýraáburð og önnur lífræn efni til áburðar.

  • Organized Orientasion – Skiptiræktun þar sem við á

  • Controlled Livestock Grazing – Hagkvæm beitarstjórnun búfénaðar

Ávinningur

  • Minni kostnaður fyrir bændur vegna minni áburðarkaupa, arfaeiturs o.fl.

  • Dregur úr eldsneytisnotkun – ekki eins oft verið að plægja – léttari vélar.

  • Með því að draga verulega úr, jafnvel hætta alveg árvissri plægingu, þar sem það er stundað, þá eykst efsti hluti jarðvegsins (topsoil).

  • Með þekjugróðri dregur úr jarðvegsfoki og eyðingu jarðvegs.

  • Aukin binding kolefnis í jarðveginn - loftslagsbæting.

  • Jarðvegur verður meira lífrænn – örveruflóran eykst.

  • Vatnsbúskapur bætist með getu jarðvegsins að halda meiri vatni.

  • Þarf ekki lífræna vottun

  • Plöntur heilbrigðari – standa betur af sér skordýraárás og sýkingar

  • Hagkvæm beitarstjórnun búfénaðar getur dregið úr notkun tilbúins áburðar o.fl.

  • Kjöt af grasfæddum búfénaði er talið heilnæmara.

  • Þar sem ekki eru notuð kemísk efni, eins og tilbúinn áburður skordýraeitur og þess háttar, þá hafa rannsóknir sýnt fram á það að grænmeti og kjöt, sem eru framleidd við slíkar aðstæður verður heilbrigðara og næringarríkara.

  • Í raun og veru eins og var fyrir 80 árum síðan.

Heimildir

  • Bókin: Defending Beef: The Case for Sustainable Meat Production eftir Nicolette Hahn Niman.
  • Dr. Kris Nichols er Microbiologist og var yfirvísindamaður á Rodale Institute í rúm 3 ár og sá um samanburðarrannsókn sem hafði staðið yfir í 40. ár. Skýrslan fylgir hér með.
  • Gabe Brown, bók: From Dirt to Soil (Fæst á Amazon og Audible), einnig mikið af fyrirlestrum á youtube.com, t.d. Building Resilience_Gabe Brown & Shane New. Þeir eru með fyrirtæki og youtube rás sem heitir Understanding Ag.
    Gabe Brown Update and Future of Regenerative Agriculture. Gabe Brown Update and Future of Regenerative Agriculture – YouTube
  • Dr. Elaine Ingham er Microbiologist, á og rekur vefinn www.soilfoodweb.com , er einnig oft með webinar á netinu, t.d. á youtube, Soil Regeneration and Ecosystem Restoration Camps | John D. Liu, https://youtube.com/live/CBdcanZc488?si=FaecviH8LhMHMrB_ og marga fleiri þætti um heilbrigði jarðvegarins. Understanding Soil Health | Healthy Soil – Healthy Planet Part 1. Understanding Soil Health | Healthy Soil – Healthy Planet Part 1 (youtube.com)
  • Nicole Masters Agroecologist, fyrirlesari og rithöfundur gaf út bókina For the Love of Soil. Mjög áhugaverð bók.
  • Dr. Christine Jones, er menntuð á svið lofts, lands og vatnavísinda. Stofnaði Amazing Carbon og Carbon for Life Incorporated til að miðla upplýsingum til bænda og almennings. Til fullt af fyrirlestrum á youtube.
  • Dr. James White Jr., Rutgers, The State of Univesity of New Jersey, Department of Plant Biology and Pathology, Ph.D. University Texas, Austin.
    Frábær uppgötvun á því hvernig plönturætur taka inn bakteríur, þvo af þeim næringarefnin og spýtir þeim aftur út í gegnum rótarhárin. Myndband á youtube: “Rhizopagy Soil Science -Plants Eat Bacteria”, https://www.youtube.com/watch?v=oBTqOMzXZAo Margir hafa tekið við hann viðtal um þetta efni á netinu. Mjög svo athyglisvert og spennandi rannsókn sem var gerð. Fleiri rannsóknir í bígerð á blöðum plantna.
  • Charles Dowding, býr í Somerset á Englandi, nam landafræði í Cambridge University og hefur sinnt umhverfismálum alla sína tíð. Byggir alla sína ræktun á No Dig aðferð, ekki snúa jarðveginum og hefur gert í yfir 40 ár. Heldur úti mjög skemmtilegri youtube rás um hvernig maður byggir upp No Dig garð og hvernig hann heldur honum við.
  • The Soil Food Web Movement Part 4: Soil Health Success: Alfalfa Hay Farm https://www.youtube.com/watch?v=Mrs6BExFWqc Myndband um moltu.
  • Carbon Farming: A Climate Solution Under Our Feet – NHK WORLD PRIME Carbon Farming: A Climate Solution Under Our Feet – NHK WORLD PRIME (youtube.com)
  • Allan Savory v George Monbiot debate | Is livestock grazing essential to mitigating climate change? https://www.youtube.com/watch?v=-FihlOvsVkY Bókin Holistic
  • Management. Fæst á Amazon og Audible.
  • Bókin: Sacred Cow: The Case for (Better) Meat: Why Well-Raised Meat Is Good for You and Good for the Plane. Fæst á Amazon og Audible. Einnig til á Youtube.

Ýmis fróðleikur, hlekkir og heimasíður um auðgandi landbúnað og heilbrigði jarðvegs.

https://understandingag.com/ Gabe Brown, Allen Williams og félagar. Gabe Brown er einn af frumkvöðlum í jarðvegsheilbrigðishreyfingu sem heitir Understanding Ag, sem leggur áherslu á ræktun og fræðslu um hvernig við getum bætt jarðveginn okkar og hvernig bændur geta betur haft stjórn á beitarstjórnun. Mikið efni á youtube.com af fyrirlestrum um þetta efni. Mjög fróðlegt.
https://rootssodeep.org/ Peter Byck er framleiðandi þáttar í 4. hlutum sem heitir “Roots So Deep (you can see the devil down there)” . Þar leiðir hann hóp vísindamanna og bænda sem er til í að fara úr hefðbundnum landbúnaði yfir í auðgandi landbúnað og ræðir einnig við nágranna þessara býla sem tóku þátt í þessari rannsókn. Einnig er sería sem heitir carbon cowboys á youtube.com um beitarstjórnun og ýmislegt.
Dr. Kris Nicols leggur áherslu á að takast á við núverandi sem og framtíðarþarfir í landbúnaði með því að kanna samband milli jarðvegs, rótarkerfi og starfsemi örvera og plantna í að binda kolefni í jarðveginum til langs tíma. Mörg myndbönd á youtbe með efni um fyrirlestra hennar á ýmsum málum er varðar þetta efni.
https://advancingecoag.com/ John Kempf er frumkvöðull, ræðumaður, hlaðvarpsgestgjafi, leiðandi ráðgjafi í ræktun á heilbrigði plantna og hönnuður nýstárlegra jarðvegs- og plöntustjórnunarkerfa. Hann stofnaði Advancing Eco Agriculture árið 2006. Fullt af fyrirlestrum á youtube.com við ýmsa aðila um auðgandi landbúnaði og ræktun á þessu sviði.
  • https://www.soilfoodweb.com/ Dr. Elaine Ingham B.A., Biology and Chemistry, St. Olaf College M.S., Microbiology, Texas A&M University, Ph.D., Microbiology, Colorado State University. Stofnandi Soil Food Web og mikið af góðum fyrirlestrum á youtube.com og jarðvegslíf og hvernig ,,hagkerfi neðanjarðar” virkar. Á einnig og rekur soilfoodweb school.

  • https://livingwebfarms.org/ Þetta er sjálfseignarstofnun sem hafa gert fræðslumyndbönd og fullt af fræðslu um allt er viðkemur ræktun, moltugerð lífkolsgerð o.m.fl. í meira en áratug. Á þessum vef er mikið til af veffræðsluefni og gagnlegum upplýsingum.

  • https://amazingcarbon.com/ Dr. Christine Jones er alþjóðlega þekkt og mjög virt jarðvegs- og jarðvegsvistfræðingur. Hún hefur unnið með landeigendum til að innleiða endurnýjandi aðferðir sem auka líffræðilegan fjölbreytileika, auka líffræðilega virkni, binda kolefni, virkja hringrás næringarefna í jarðvegi, endurheimta vatnsjafnvægi, bæta framleiðni og búa til nýjan jarðveg. Mikið til af máþingum og þáttum á youtube þar sem hún dælir út fróðleik um jarðvegsheilbrigði og ,,neðanjarðarbúfénaðinn“ sem sér um öll samskipti, næringarferli þeirra og samlíf við rótarkerfi allra plantna. Áhugavert fræðsluefni og viðtal við Dr. Cristine Jones á green cover síðunni: 
https://greencover.com/ Mikið efni og viðtöl við fagfólk á hinum ýmsum sviðum ræktunar og búrekstur er á youtube síðunni þeirra t.d frábært viðtal við Dr. James White sem fjallar um samskipti rótarhára plantna við bakteríur inni í rótarhárum og heitir þáttirinn Rhizophagy Cycle with Dr. James White. Alveg magnað ferli sem fer þar fram og stórkostlegt að horfa á.
Ray Archuleta er löggiltur jarðvegsfræðingur hjá Jarðvegsvísindafélagi Ameríku og hefur yfir 30 ára reynslu sem jarðvegsverndarfræðingur, sérfræðingur í vatnsgæðamálum og landbúnaðarfræðingur hjá Natural Resources Conservation Service (NRCS). Ýmis myndbönd á youtube.
  • Grein um Biodiversity for multifunctional grasslands: equal productivity in high-diversity low-input and low-diversity high-input systems (fyrir áhugasama)
    https://bg.copernicus.org/articles/6/1695/2009/bg-6-1695-2009.pdf 
  • https://www.charlesdowding.co.uk/ Charles Dowding er mjög framarlega á sviði No Dig aðferðarinnar. Það er að EKKI stinga upp jarðveginn, nema nauðsyn krefur, til að brjóta ekki uppbyggingu jarðvegsins og skemma vinnu örvera, orma og annara smávera sem byggja lífrænaþáttinn í jarðveginum. Er einnig með mikið efni á youtube um sáningu, moltugerð, ormabú og margt fleira. Mjög skemmtilegur vefur.
  • https://www.richardperkins.co/ Richart Perkins á og rekur Ringdale Farm í Svíþjóð þar sem hann ræktar allt með lífrænum hætti, er með hænur, svín, kindur o.fl. Er einnig með kennslu um heildræna nálgun við ræktun, No Dig aðferð og ýmislegt fleira á svæðinu hjá sér. Er einnig með myndbönd á youtube.

    https://www.ridgedalepermaculture.com/

  • https://groundswellag.com/ The Regenerative Agriculture Festival, Lannock Farm, Hertfordshire, SG4 7EE, UK. Stór landbúnaðarsýnig og fyrirlestrar á þessu skemmtilegu landsvæði ca. 50 km. fyrir utan London. Ýmsir fræðimenn, bændur og sölumenn halda fyrirlestra. málþing og umræður eru á svæðinu í stórum tjöldum á svæðinu. Fórum í fyrra 2024 og var alveg frábært. Þeir eru einnig með flest alla fyrirlestrana á youtube, einnig frá fyrri árum mjög áhugavert. Næsti viðburður verður 2 og 3 júlí nk. Kaupa þarf miða inn á sýninguna og er vel þess virði að fara þangað.

  • https://savory.global/ Allan Savory er stofnandi heildrænnar stjórnunar og Savory Institute, Allan hefur gert það að ævistarfi sínu að skilja og snúa við því sem olli hraðri niðurbroti lands og dýralífs sem hrjáði heimaland hans Rhodesíu. Hann hefur einnig unnið með fjölmörgum aðilum í fjórum heimsálfum sem ráðgjafi um auðlindastjórnun og heildrænni umhverfis nálgun á landsvæðum sem eru illa farin.

Scroll to Top