Um okkur

Helstu upplýsingar um okkur

Sæl, ég heiti Þórunn Ólafsdóttir og er sjúkraliði að mennt og ég elska hvítlauk. Mér fannst vanta góðan íslenskan hvítlauk á markaðinn, því megnið af þeim hvítlauk sem við kaupum í dag út úr búð er innfluttur frá Kína. Þannig fæddist sú hugmynd að Tóuræktun – Dalahvítlaukur.
Eiginmaður minn Haraldur Guðjónsson er meðeigandi í þessu verkefni. Hanner búfræðingur, fyrrverandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
Við ræktunina mun vera notast við ákveðna aðferð sem kallast á ensku No dig/No till. Með henni er leitast við að skapa góð vaxtaskilyrði, án þess að plægja jarðveginn eða nota tilbúinn áburð. Til að vel takist, þá þarf að huga vel að moldinni. Það þarf að næra hana og lífríkið sem þar býr og þannig fæ ég náttúruna til að vinna fyrir mig, sem skilar sér í betri og hollari vöru.
Í sumar 2024 fengum við styrk frá DalaAuð og nýttum hann til að setja upp annað bambahús og er það þrefalt að stærð. Þau eru í grunninn gróðurhús en við höfum nýtt þau sem þurrkhús fyrir hvítlaukinn. Það hefur komið mjög vel út sem slíkt, en komið hefur í ljós að þessi 3 bambahúr duga ekki fyrir allan þann hvítlauk, sem er von um að uppskerist í haust.
Fólk alltaf velkomið að kíkja á okkur og skoða

Verkefnið

Dalahvítlaukur er nýsköpunarverkefni í Dalabyggð. Verkefnið er hafið en það hófst með tilraunaræktun í litlum beðum árið 2020.
Til frekari upplýsinga um ræktunina vísum við í fyrri umsóknir okkar til DalaAuðs.
Það sem það kom í ljós þegar verið var að hengja upp til þurrkunar í bambahúsinn þann hvítlauk, sem kom upp, þá munu þessi bambahús ekki duga miðað við þá stækkun, sem framkvæmd var í sumar.
Það er stutt frá því að segja að við urðum fyrir verulegum uppskerubresti í sumar, eða um 90%. Það geta verið margar samhangandi ástæður fyrir því, eins og: verulega kalt,blautt, vindasamt og sólarlítið sumar og jafnvel lélegt útsæði.
Varðandi ef um lélegt hvítlauksútsæði er að ræða höfum við brugðist við þannig að við keyptum útsæði frá Frakklandi frá aðila, sem er sérhæfður í útflutningi á hvítlauksútsæði. Þann hvítlauk settum við niður í sumar með sérhæfðu hvítlaukssáningartæki, sem við fengum styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Var það erfitt vegna mikillar bleytu.
Í sumar var tekið í gagnið nýtt svæði, sem um 2 hektara tún, sem eru rétt austan við aðkeyrslu að landi okkar. Grasið var tætt af og rakað ofan af með flaghefli í manir. Beðin mynduð vélrænt og síðan hreinsuð með því að raka grastæjur í burt. Síðan var sáð þekjugróðri, sem náði ekki nægilega að vaxa eins og sést á mynd hér að ofan. Það er fyrst og fremst að kenna köldu, vætusömu og sólarlausu sumri. Þannig moldin var alltaf köld og blaut.

0 +

Sed sed risus eleifend

Þess vegna er afar nauðsynlegt að framkvæma ræsingu þannig að grafin verða rör frá hverju beði og út í skurð. Einungis þannig geta beðin ræst sig af vatni og þornað. Það er bráðnauðsynlegt því hvítlaukur þrifst og vex illa í miklum raka. Gert er ráð fyrir að þetta verði gert eins og fljótt og hægt er í vor og sumar.

Markmið

Markmið fyrirtækisins er að rækta bragðgóðan íslenskan lífrænt ræktaðan hvítlauk og auka fjölbreytni í hvítlauksræktun hér á landi. T.d. er stefnt að fjölgun yrkja (tegunda) og ræktun á risahvítlauk (Elephant), sem hefur ekki sést hér á landi áður. Það er mjög brýnt fyrir okkur Íslendinga að við hugum að fæðuöryggi okkar til framtíðar og við aukum fjölbreytni í ræktun hér innanlands og tryggjum innlenda framleiðslu. Lögð verður áhersla á sjálfbærni í framleiðslu á hvítlauknum, svo ekki þurfi að styðjast við árleg innkaup erlendis frá. Þannig mun hluti uppskerunnar ávallt vera nýtt sem útsæði fyrir uppskeru næsta árs. Vörurnar sem við ræktum verða seldar innanlands og er stefnt að því þegar uppbyggingu er lokið að við munum rækta nokkur tonn af hvítlauki á ári sem færi á innanlandsmarkað.

Nýnæmi

Vörur, þar sem hvítlaukur, ræktaður í Dölum er megin uppistaðan, hefur mikla sérstöðu hér á landi þar sem enginn annar ræktandi af sömu stærðargráðu finnst hér og þar með engar vörur á markaði úr íslenskum hvítlauk. Nýnæmið felst einkum í því að notaður er íslenskur hvítlaukur og annað íslenkt hráefni. Til dæmis í hvítlaukssaltinu, sem við settum á markaðinn nú í byrjun ársins er innihaldið sjávarflögusalt frá Norðursalti og 25% hvítlaukur ræktaður í landi Neðri-Brekku í Dalabyggð.
Þessar hliðarafurðir eins og hvítlaukssaltið sem við höfum þróað og aðrar eins og hvítlaukssalt með blóðbergi, hvítlauks konfit, hvítlauksmauk og hvítlauksolía, sem við erum að sækja um styrk hér til að þróa, eru að mestu unnin úr hvítlauk, sem annars færi í lægri gæðaflokk og lítil hvítlauks rif, sem nýtast ekki almennilega. Þannig í staðinn fyrir að henda þessu eða setja í lægri gæðaflokk, komum við til að framleiða íslenska vöru í efsta gæðaflokki.
Þar sem þessar afurðir hafa ekki verið framleiddar áður hér á Íslandi, sem íslenskar vörur er hér um nýnæmi að ræða á markaðnum. Við teljum að það sé til staðar stórt gat í markaðnum hér ef svo má segja fyrir þessar vörur. Viðbrögðin við sölu okkar á hvítlaukssaltinu sanna og styrkja þá fullyrðingu okkar, því þau fóru langt framúr okkar björtustu vonum.

Aðferð

Þær aðferðir og verkferlar sem nýttir eru í þessu verkefni eru nýjung á Íslenskum markaði, en ekki hefur verið framleiddur hvítlaukur á Íslandi með þessum aðferðum áður. Ferlarnir sem nýttir eru í verkefninu eru í sjálfu sér ekki nýjung, því henni hefur verið beitt á mörgum svæðum erlendis við góða reynslu. Þessar aðferðir og ferlar miðast að því að stuðla að náttúrulegri sjálfbærni, endurnýjun og náttúrulegri uppbyggingu jarðvegsins. Það er lykilatriði í þessu að nota ekki tilbúin áburð, kemísk skordýraeitur eða arfaeitur. Eingöngu lífrænan áburð. Þetta eru byltingarkenndar aðferðir, sem þarf að kynna bændum, stjórnvöldum og Landbúnaðarháskólanum. Verkefnið gæti þvi í raun og veru leitt til umbóta á ferlum í landbúnaði og er þannig um að ræða nýjung sem er áður óþekkt í ræktun hérlendis.
Um er að ræða “Regenarative Acriculture”, eða Auðgandi Landbúnaður, sem byggir á þremur meginreglum:

  1.  Snúa ekki jarðvegi “No Dig/No Till”
  2.  Rækta fjölbreyttan þekjugróður
  3.  Framkvæma skiptiræktun þar sem hún á við.
  4.  Draga verulega úr notkun tilbúins áburðar og annarra kemískra efna
  5.  Beitarstjórnun

Bæði Matvæla- og Landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Alþjóðabankinn mæla með þessum þremur þáttum Loftlagsvæns landbúnaðar.
Alþjóðabankinn stuðlar að sömu meginreglum og grundvelli til “loftslagsvæns” landbúnaðar sem á að auka uppskeru, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, binda kolefni í jarðvegi og efla viðnám landbúnaðarins gegn loftslagsbreytingum.
Það eru bara ekki bændur sem hafa áhuga. Fjöldi áberandi stofnana hafa tekið upp jarðvegsheilbrigði sem megin þema í viðleitni þeirra til loftlagsmála. Fremstir meðal þeirra eru Howard G: Buffet Foundations í Illinois, Noble Foundation í Oklahoma og Regenerative Acriculture Foundation í Kaliforníu.
Rodale Institute í Bandaríkjunum birti nýlega skýrslu um 40 ára samanburðarransókn um þetta efni:
Farming Systems Trial – Rodale Institute
Einnig fyrirtæki eins og General Mills og Walmart í USA, sem hafa tekið þá ákvörðun að versla eingöngu við bændur sem steunda þesskona landbúnað og hafa þessi tvö fyrirtæki ætlað sér að stuðla að aukningu á loftlagsvænum landbúnaði um 600.000 ekrur eða rúmlega 300.000 hektara í USA
Hér eru vefsíður varðandi þetta:
https://www.generalmills.com/how-we-make-it/healthier-planet/environmental-impact/regenerative-agriculture
https://www.generalmills.com/news/press-releases/general-mills-and-walmart-join-forces-to-advance-regenerative-agriculture
Árið 2012 hóf Natural Resource Conservation Service (NRCS) innlenda jarðvegsheilbrigðisáætlun til að stuðla að aukinni þekkingu á því hvernig aðferðir eins og No Dig/No Till, þekjugróður og fjölbreytt skiptiræktun byggja upp kolefni í jarðvegi og hvernig örverustarfsemi styður við þá uppbyggingu.

David R. Montgomery er prófessor í jarð- og geimvísindum við Washington háskóla í Seattle, þar sem hann er meðlimur í Quaternary Research Center.
Um Dr. David R. Montgomery:
https://www.ess.washington.edu/people/profile.php?pid=montgomery–david
https://en.wikipedia.org/wiki/David_R._Montgomery
Heimasíða Dr. David R. Montgomery: http://gis.ess.washington.edu/grg/
Fleiri síður um efnið
https://www.morningagclips.com/the-fifth-agricultural-revolution/
https://www.producer.com/news/the-fifth-revolution

Sýna meira Sýna minna
Scroll to Top