- Neðri-Brekkuland 371, Búðardal Hvolsdal, Dalabyggð
Fróðleikur um hvítlauk
Það eru til margar tegundir af hvítlauk en þó skiptist hann í aðallega í tvo hópa þ.e. softneck (mjúkhálsa) og hardneck (harðhálsa) hvítlauka.
Almenn flokkun hvítlauks
Hvítlauk má í stórum dráttum flokka í tvo meginhópa: hardneck (harðhálsa ) og softneck (mjúkhálsa) hvítlauka.
Hardneck ( harðhálsa ) hvítlaukur er þekktur fyrir að vera bragðsterkur og er sagður kuldaþolnari og að hann þrífst í köldu loftslagi og er oft vinsæll fyrir flókið og mikið bragð, er með stærri rif eða geira heldur en softneck ( mjúkhálsa ) hvítlaukurinn, sem inniheldur afbrigði eins og t.d. þann hvítlauk sem við kaupum út í búð.
Softneck hefur oft mildara bragð og ef hann er verkaður rétt hefur hann lengri geymsluþol en hardneck (harðhálsa), sem oftar ræktaður í hlýrra loftslagi.
Ólíkt softneck (mjúkumhálsa ) hvítlauk, þá myndar hardneck ( harðhálsa ) afbrigði blómastöngul – sem kemur upp úr miðjum lauknum og myndar rif/geira kringum þennan blómastöngul. Rifin/geirarnir vaxa þétt í kringum stöngulinn og er færri rif/geirar á hardneck tegundum en á softneck tegundum. Hardneck hvítlaukar eru oft bragðsterkari.
Á softneck teg. vaxa rifin/geirarnir í kringum mjúkan stöngul, eru oft miklu fleiri en á hardneck teg.
Softneck, (Allium sativum ssp. sativum) ( linhálsa ) hvítlaukur
Þetta er sú tegund af hvítlauk sem við finnum í flestum matvöruverslunum. Rifið/geirinn er bragðmildur og kostur hvítlauksins er að hann geymist mjög vel ef hann er rétt meðhöndlaður og þurrkaður. Rif eru á bilinu 10-18 í softneck tegundum.
Þar sem hálsarnir eru bókstaflega svo mjúkir er auðvelt að flétta þá fallega saman, oft 10-12 saman í fléttu og er hvítlauksflétta skemmtileg eldhúsgjöf fyrir vini og fjölskyldu.


Af hverju að rækta Softneck hvítlauk?
Softneck hvítlaukur er vinsæll kostur fyrir heimilisgarðyrkjumenn sem vilja rækta hvítlauk með langt geymsluþol með milt og fjölbreytt bragð. Ólíkt hardneck (harðhálsa) hvítlauk, mynda softneck (mjúkhálsa) tegundir ekki blómastöngul. Þó hef ég séð á mínum softneck að upp eftir þessum mjúka stöngli sem er efst á lauknum sjálfum, myndast lítil rif sem eru þá í raun nýtt afbrigði þess lauks, en það getur tekið 3.ár að fá hann í rétta stærð.
Softneck (lin/mjúkhálsa) hvítlauksplöntur framleiða stóra lauka með mörgum rifjum/geirum sem geymast vel og eru fullkomnir til eldunar. Softneck tegundir, eins og Artichoke og Spanish Roja, þrífast þó frekar í heitara loftslagi og hafa lengri geymsluþol samanborið við hardneck (harðhálsa) hvítlauk.
Ef þú ert að gróðursetja hvítlauk í uppreist beð eða út í garði, þá er softneck ( linhálsa) hvítlaukur tilvalinn fyrir þá sem vilja uppskera stóra lauka sem eru umvafin pappírsklædda hlíf sem dugar vel til langtímageymslu.
Geymsla á softneck (lin/mjúkhálsa ) hvítlauk er á þurrum stað, getur geymslutíma þeirra verið um 10-12 mánuðir við rétta geymslu, t.d. bískúr/geymsla í 15-18°.
Hvítlaukur vill jarðveg þar sem ekki mikið vatn safnast, vill vera á móti sól, helst í suður og er illa við samkeppni af öðrum ágengum plöntumaðrar eins og arfa. Hann þarf mikla áburðargjöf af lífrænum áburði ca. 1x í viku -10 daga fresti.
Hardneck (Allium sativum ssp. ophioscorodon), harðhálsa hvítlaukur
Hardneck (harðhálsa) hvítlaukur er meira skyldur villtum hvítlauk, með flóknu bragði er sagt. Þeir þrífast vel í köldu loftslagi. Þetta eru hvítlaukarnir sem sumir bera saman við góð vín með sérstöku bragðgæðum þar getur skipt máli hvernig jarðvegurinn er, áburður og jafnvel veðurfar geta haft áhrif á.
Hardneck (harðhálsa) hvítlaukar myndar blómastöngul og þegar stöngullinn hefur vaxið í hálfhring ca.25-30 cm. þá er hann klipptur af ( passa að klippa af ca.0,5 cm frá efsta blaðpari svo ekki komist sýking í ) svo hann myndi ekki blómaknúpp. Ef stöngullinn fær að vaxa dregur það úr stærð lauksins í moldinni þar sem krafturinn fer í að mynda blóm og svo fræ eða bulbis sem verður í raun ný teg. af þessum lauk. Það ferli getur tekið 3.ár.
Þessi blómastöngull er kallaður scape og má nota hann eins og graslauk til matargerðar. Mjög gott.
Hardneck ( harðhálsa) hvítlaukar geymast ekki eins lengi og softneck (mjúk hálsar) en ef rétt verkaðir eftir uppskeru og þurrkaðir getur geymslutíma þeirra verið um 6-8 mánuðir við rétta geymslu, t.d. bískúr/geymsla í 15-18°.
Hardneck (harðhálsa) hvítlaukur framleiðir færri rif/geira en softneck en er með frekar stór rif/geirar á bilinu 5-8 stk í lauk.
Softneck (mjúkhálsa) tegundir t.d.:
Inchelium Red (softneck, Artichoke teg)
Silver Wight (softneck, Silverskin teg)
Germidor (softneck, Franskur að uppruna)
Messidrome (softneck, Franskur að uppruna)
Solent Wight (softneck, Silverskin)
Til eru enn fleiri tegundir af softneck afbrigðum.
Hardneck (harðhálsa) tegundir t.d.:
Music (hardneck, Porcelain teg)
German White/ German Extra Hardy (Hardneck, Porcelain teg.)
German Red (Hadneck, Rocambole teg. margar teg til af þessu afbrigði, bragð- mikill)
Chesnok Red (Hardneck, Purple Stripe)
Russian Gigant (Hardneck, Marble Purple Stripe)
Til eru enn fleiri tegundir af hardneck tegundum.
Allium ampeloprasum (Ampeloprasum Group)
Elephant garlic, Allium ampeloprasum var. ampeloprasum looks and tastes like garlic but is actually more closely related to leeks
